Stundin leiðir lesendur á villigötur

Stundin fer með himinskautum í dag þegar blaðamenn þar draga ályktanir af svokölluðum Panama-skjölum. Svo virðist sem Stundin telji Panama-skjölin fullnægjandi til að rekja sig eftir flóknum viðskiptum og draga af þeim ályktanir. Samkvæmnin er þó ekki meiri en svo, að á einum stað fullyrðir Stundin að stórar fjárhæðir hafi einhvern veginn gufað upp, viðurkennir í næsta orði að ekki hafi tekist að rekja þá slóð sem blaðið taldi sig vera á og loks að það sé „ógerlegt að fullyrða nokkuð um hvaða eignir voru inni í þeim félögum“ sem fjallað er um.  Stundin fer með gamalt fleipur og villir um fyrir lesendum sínum. Ég hef fyrir löngu gert öll mín mál upp við kröfuhafa.

Vegna þess hluta umfjöllunarinnar sem að mér snýr vil ég ítreka örfá atriði, en að öðru leyti nenni ég ekki að elta ólar við söguheim Stundarinnar:

1.       Ég var vissulega í miklum og alþjóðlegum lánaviðskiptum, þar á meðal við Landsbankann í Lúxemborg eins og nefnt er í greininni. Eignir mínar og innistæður voru að sama skapi mjög miklar. Lán mín við bankann voru öll gerð upp.

2.       Í tengslum við skuldauppgjör mitt fór fram mjög ítarleg rannsókn á fjármálum mínum. 100 manna her lögfræðinga, endurskoðenda og annarra sérfræðinga fór yfir öll gögn um mig og öll félög mín.  Þær upplýsingar voru miklu ítarlegri en finna má í Panamaskjölunum einum, enda veittur frjáls aðgangur að öllum bankareikningum, bókhaldi, stjórnendum allra viðkomandi fyrirtækja sem og ráðgjöfum.  Hugleiðingar um að einhverju hafi verið haldið undan eru bæði ósmekklegar og meiðandi, fyrir utan þá kokhreysti blaðamanna Stundarinnar að telja sig hafa fundið það sem þessum sérfræðihópi á vegum kröfuhafa minna á að hafa yfirsést.  Hvað varðar félagið Ranpod sérstaklega þá lágu upplýsingar um það félag fyrir við rannsókn á fjármálum mínum.

3.       Enn ganga svo aftur vangaveltur um að réttast hefði verið að við feðgar værum skráðir sem fjárhagslega tengdir aðilar hjá fjármálastofnunum. Slík skráning hefur ekkert með fjölskyldutengsl að gera. Við vorum ekki og erum ekki fjárhagslega  tengdir sem sést best á því að faðir minn varð gjaldþrota en ég ekki.