Duttlungar fyrir dóm

Störfum
hlaðið dómskerfi Íslands þarf nú að bæta á sig duttlungum Vilhjálms
Bjarnasonar. Mál sem hann og málsóknarfélag hafa höfðað gegn mér verður
væntanlega þingfest
í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 

Málefni mín og bankans hafa verið rannsökuð í þaula af þar til bærum yfirvöldum og ekki talin ástæða til aðgerða í nokkru þeirra.  Þar að auki hef ég gert upp allar mínar skuldir við bankann og hann því skaðlaus af viðskiptum við mig.  Slitastjórn bankans hefur staðfest að hann eigi engar kröfur á mig. Misfærslum í skýrslu rannsóknarnefndar hef ég svarað ítarlega enda hef ég ekkert saknæmt unnið.  
Þráhyggja Vilhjálms Bjarnasonar á sér hins vegar lítil takmörk. Með hana að vopni sér hann rangfærslur og svik þar sem sérfróðir rannsakendur sjá ekkert aðfinnsluvert. Það er illt að dómskerfið þurfi að eyða tíma sínum í slíkan málatilbúnað.