Fjármunir frá Samson ehf. fluttir milli félaga vegna nýrra fjárfestinga

Fjölmiðlar hafa síðustu daga fjallað um fjárreiður Samson eignarhaldsfélags ehf. þar sem látið er í veðri vaka að óreiða hafi verið í bókhaldi félagsins og einstök viðskipti þess við önnur félög í eigu sömu eigenda hafi verið óeðlileg. Þessu er alfarið hafnað.  Vegna þessara frétta vilja fyrrum eigendur félagsins koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum:

  • Starfsmenn Samson hafa veitt skiptastjóra upplýsingar og skýringar á öllum umræddum viðskiptum. Þetta eru ýmist fjárfestingar eða viðskiptalán til félaga í eigu sömu eigenda vegna nýrra fjárfestinga sem í flestum tilfella var í íslenskum félögum.  Það er því alrangt að nokkrir fjármunir hafi verið fluttir eða runnið til Tortola eða annarra aflandseyja.  Ekkert umræddra félaga átti bankareikninga utan Evrópu. Áfram er unnið að því að aðstoða skiptastjóra við uppgjör félagsins, þ.m.t. að afla frekari gagna.
  • Viðskipti þessi áttu sér stað á árunum 2004 til 2007 þegar fjárhagur Samson og fyrrum eigenda var afar sterkur. Á þeim tíma hefði verið hægt að greiða út verulegar fjárhæðir í arð til fyrrum eigenda, margfaldar þær fjárhæðir sem hér um ræðir.  Það var ekki gert og voru fjármunir félagsins þess í stað nýttir til nýrra fjárfestinga sem ætlað var að styrkja félagið.
  • Í ársreikningum Samson er gerð grein fyrir þessum viðskiptum og engu haldið undan. Ársreikningarnir eru endurskoðaðir og hafa um langt skeið verið opinberir og birtir í Kauphöll Íslands.

Enginn fótur er því fyrir ályktunum um að fjármunum Samson hafi verið komið undan í skjól eða runnið til eigenda félagsins. Í öllum tilfellum var um að ræða fjárfestingar eða viðskiptalán vegna nýrra fjárfestingaverkefna.

Reykjavík, 14. janúar 2010