Stöð 2 dregur frétt um stórfellda fjármagnsflutninga til baka

Stöð 2 dróg til baka í kvöld frétt frá í júlí 2009 þess efnis að ég ásamt þremur öðrum hefði flutt milljarða af reikningum okkar í Straumi til aflandseyja rétt fyrir fall bankanna. Strax og fréttin fór í loftið á sínum tíma hringdi ég í Fréttastofu  Stöðvar 2 og sagði þeim að hvað mig varðaði væri þetta einfaldlega rangt. Fréttastofan sagðist standa við frétt sína og hún stóð áfram við fréttina eftir að Straumur hafði sent út tilkynningu um að fréttin væri út í hött. Til að verja rétt minn ákvað ég að höfða meiðyrðamál. Nú þegar Stöð 2 hefur dregið fréttina til baka er engin ástæða til annars en að draga kæruna um meiðyrði til baka.

Yfirlýsing Fréttastofu Stöðvar 2 þar sem hún dróg til baka ranga og meiðandi frétt var svöhljóðandi:

Fréttastofa Stöðvar 2 hefur ákveðið að draga til baka fréttaflutning af meintum fjármagnsflutningum nafngreindra manna til skattaskjóla sem birt var í júlí 2009.

 
Í lok júlí 2009 birti Stöð 2 og vefmiðillinn visir.is frétt þess efnis að fjórir nafngreindir menn, Björgólfur Thor Björgólfsson, Björgólfur Guðmundsson, Karl Wernerson og Magnús Þorsteinsson, hefðu látið flytja milljarða króna úr Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka í erlend skattaskjól á sama tíma og tilkynnt var um þjóðnýtingu Glitnis banka. Þá var eignarhaldsfélagið Samson sagt koma við sögu þessara meintu fjármagnsflutninga.
Í fréttatilkynningu Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka í kjölfarið segir að efni fréttarinnar hafi ekki verið borið undir fjárfestingarbankann og að hún sé tilhæfulaus. Þá hefur skiptastjóri þrotabús Samson staðfest, að engar slíkar millifærslur hafi átt sér stað.

Fréttastofan byggði fréttaflutninginn á frásögn heimildarmanns, en hafði ekki nein gögn undir höndum er studdu frásögn hans. Fréttastofan telur við nánari skoðun að heimildir fyrir fréttinni hafi verið ófullnægjandi og rangar og var frétt fréttastofu Stöðvar 2 af málinu því röng.

Vinnulag fréttastofu var ekki í samræmi við siðareglur 365 miðla um mat heimilda og rétt aðila umfjöllunarefnis til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Þeir starfshættir hafa verið endurskoðaðir til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

Fréttastofa Stöðvar 2 dregur fréttina til baka og biðst velvirðingar á þeim skaða sem hún kann að hafa valdið hlutaðeigandi.

Reykjavík 10. maí 2010,

Fyrir hönd Fréttastofu Stöðvar 2 og visir.is,
Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri