Samkomulag eykur virði eigna Landsbankans

Samkomulag skilanefndar Landsbankans við Björgólf Thor Björgólfsson, Actavis og Landsbankann í Lúxemborg hefur aukið virði eignasafns bankans um 6%. Þetta kom fram í kynningu skilanefndar Landsbankan fyrir kröfuhafa bankans í morgun, mánudag. Á Vísir.is kemur fram að endurheimtur hefðu aukist um 64 milljarða króna og segir þar að samningar við Björgólf Thor skipti mestu. Þá segir á mbl.is að áætlað verðmæti eignasafns skilanefndar sé 1,177 milljarðar króna.

Í kynningu skilanefndarinnar kemur fram að meginástæðan fyrir hækkandi endurheimtum séu samningar sem gerðir hafa verið á tímabilinu, t.d. samningar um eignir í dótturfélagi bankans í Lúxemborg, en einnig samningar við Björgólf Thor Björgólfsson og fyrirtæki tengd honum. Með þeim samningum hafi tekist að undirbyggja eignarsafnið betur og treysta grundvöll þess. Þar með dragi úr óvissu, meiri stöðugleiki skapast og möguleikar aukist á bættum endurheimtum í framtíðinni.