Endurteknar rangfærslur um krónuviðskipti

ISK-vidskipti-2007-2008

DV fjallar í dag um fyrrverandi starfsmann Novators í London, Heiðar Má Guðjónsson. Í greininni eru endurteknar þrálátar rangfærslur um gjaldeyrisviðskipti Novators þar sem látið er í veðri vaka að Novator hafi unnið gegn krónunni. Þetta er ekki rétt. Novator seldi íslenskar krónur þegar gengi hennar var hátt en keypti hins vegar krónur þegar fjaraði undan henni og því stóð Novator með krónunni þegar á reyndi, – öfugt við marga aðra.

Á árinu 2007 seldu félög tengd Björgólfi Thor Björgólfssyni fleiri krónur en þau keyptu og skýrist það á mati þess tíma að krónan væri of hátt skráð miðað við aðra gjaldmiðla. Á árinu 2008 breytast forsendur þar sem við lok fyrsta ársfjórðungs fellur gengi íslensku krónunnar um nærri fjórðung. Eftir það styðja Novator og tengd félög við íslensku krónuna með því að kaupa hana eins og sést vel á meðfylgjandi mynd. Á þriðja ársfjórðungi ársins sem voru þrír síðustu mánuðurnir fyrir hrun bankakerfisins keyptu félög tengd Björgólfi Thor íslenskar krónur fyrir andvirði um 400 milljóna evra.