Heiðar Már skýrir mál sitt og dregur DV fyrir rétt

Heiðar Már Guðjónsson, fyrrum framkvæmdastjóri  hjá Novator í London, skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Þar vísar hann á bug grófum ásökunum DV um að hann hafi skipulagt árásir á íslensku krónuna ásamt alþjóðlegum vogunarsjóðum. Hann segist lengi hafa verið svartsýnn á íslensku krónuna og það geta allir þeir sem starfað hafa með Heiðari Má staðfest að er hverju orði sannara. Hann varaði alla þá sem heyra vildu við hættunni af minnsta gjaldmiðli í heimi í hagkerfi sem hafði á árunum 2002 til 2007 þanist meira en nokkurt annað í Evrópu.  Heiðar Már segir í lok greinar sinnar: „Ég hef margoft reynt að útskýra mál mitt fyrir DV en án árangurs. Tímasetning umfjöllunar blaðsins er án efa ekki tilviljun þar sem undirritaður á í lokaviðræðum um möguleg kaup á Sjóvá ásamt hóp fjárfesta. Mér finnst að fjölmiðlar jafnt sem aðrir verði að starfa af ábyrgð og hef ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn DV til að fá fullyrðingar blaðsins dæmdar dauðar og ómerkar.”

Heiðar Már Guðjónsson var einnig í viðtali við Stöð 2 sunnudaginn 24. október þar sem hann greindi frá sínum sjónarmiðum varðandi illa rökstuddan málflutning DV.