Farið yfir málin

Í framhaldi af uppgjöri mínu og félaga minna við lánardrottna féllst ég á að hitta blaðamann Viðskiptablaðsins, Gísla Frey Valdórsson. Við ræddum saman í á annan tíma um uppgjörið og ýmislegt annað sem tengist gangi mála á Íslandi síðustu árin. Fram kemur í viðtalinu sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag eitt og annað sem ég sá ekki ástæðu til að tala um opinberlega fyrr en ég væri búin að ljúka mínum málum gagnvart þeim sem ég skulda fjármuni. Hins vegar er fátt í þessu viðtali sem ekki kemur fram hér á þessum vef.