Alþingi Íslendinga samþykkti með 36 atkvæðum gegn 5 heimild til stjórnvalda um samninga um gagnaver Verne Holdings á Miðnesheiði á Reykjanesi. Samningarnir eiga að byggja á almennum ákvæðum um skattaívilnanir í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi og sátt virðist ríkja um enda herma fréttir að starfsemi gagnversins geti dregið úr atvinnuleysi á Suðurnesjum um 35%. Engu að síður hefur heimild þessi til Verne Holding verið umdeild vegna þess að ég er í hópi hluthafa. Þar sem ég var í hópi upphafsmanna að þessu verkefni og fékk erlenda meðfjárfesta að þessu verkefni vildi ég ekki að þátttaka mín yrði til þess að valda þeim tjóni. Því sendi ég bréf til iðnaðarnefndar á meðan málið var í meðförum þingsins þar sem ég bauðst til þess að afsala mér öllum ávinningi af hugsanlegum samningum ríkisins við Verne Holding. Það tilboð mitt er hluti af samningum við ríkið og gleður það mig að mál þetta er nú í höfn og framkvæmdir geta hafist á nýjan leik. Hins vegar er ég enn þeirrar skoðunar að málatilbúnaður ýmissa þingmanna vegna þessa máls sé fyrir neðan alla hellur en sumur þeirra hafa þjófkennt mig í skjóli þinghelgi og siðferðisstefnur heilu stjórnmálahreyfinganna hafa verið rökstuddar með undarlegum ályktunum um að ég sé ekki traustins verður.
Lesa meiraAllt efni á vefnum www.btb.is er unnið af Björgólfi Thor Björgólfssyni eða fyrir hann. Hann ber ábyrgð á efni vefjarins og er jafnframt handhafi höfundarréttar.