Í tilefni af fréttaflutningi af stefnu slitastjórnar Landsbankans.
Slitastjórnin hlýtur að vita, að Landsbankinn í Lúxemborg hélt utan um hlutabréfaeign fjölda einstaklinga og fyrirtækja og fráleitt að halda því fram að sú hlutafjáreign sem skráð var hjá bankanum hafi lotið yfirráðum Samsonar. Slitastjórnin ætti jafnframt að vita, að bréf sem bankinn átti í sjálfum sér og bréf í eigu félaga sem héldu utan um kauprétt starfsmanna eru Samson algerlega óviðkomandi.
Þá fer slitastjórn mikinn þegar hún fjallar um stórar útlánahættur Landsbankans. Eftir yfirtöku mína og félaga á mínum vegum á Actavis sumarið 2007 var ég að sjálfsögðu tengdur við Actavis í bókum bankans og ágreiningur bankans og FME þar með úr sögunni. Slitastjórnin nefnir þá staðreynd ekki.
Loks skal tekið fram að fréttaflutningur RÚV um að yfirtökuskylda hafi myndast þegar eignarhlutur Samsonar í Landsbankanum fór yfir 40% byggir ekki á staðreyndum. Samson var frá upphafi yfir því marki og fékk undanþágu frá 40% reglunni. Yfirtökuskylda hefði myndast við 45%, en yfir þau mörk fór Samson aldrei.
