Eignarhald félaga lá ljóst fyrir – Landsbankinn og FME deildu um túlkun reglna
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis vekur athygli á samskiptum Landsbankans og FME varðandi áhættuskuldbindingar sem tengjast félögum mínum á árinum 2006 og 2007. Lögmenn Landsbankans töldu ekki rétt að telja saman skuldbindingar mínar annars vegar og hins vegar skuldbindingar Actavis en fram að sumri 2007 átti ég undir40% í félaginu og voru þá 2 af 5 stjórnarmönnum fulltrúar mínir. Félagið laut því ekki mínum yfirráðum. Ekki var komin endanleg niðurstaða í ágreiningsmáli Landsbankans og FME þegar félög á mínum vegum yfirtóku Actavis og félagið var tekið af markaði. Eftir það var aldrei neinn ágreiningur um að skuldbindingar félagsins voru taldar með í heildaskuldbindingum mínum og minna félaga. Þá er mikilvægt að halda til haga að lánin í Landsbankanum sem ágreiningurinn var um voru öll greidd við yfirtökuna á Actavis sumarið 2007.
Væntanlega tengist þessi fréttaflutningur eitthvað framgöngu lögmanns eins, Ólafs Kristinssonar, sem er að safna saman fyrrum hluthöfum Landsbankans í málsókn gegn Landsbankanum vegna rangra upplýsingagjafa í tengslum við eignarhlut samstarfsmanna minna í Samson eignarhaldsfélaginu sem fór með ríflega 40% eignarhlut í Landsbankanum. Eins og fram hefur komið þá var bæði FME og regluverði Landsbankans kunnugt um það eignarhald. Hins vegar er það svo að ef hluthafar telja að á sér hafi verið brotið þá eiga þeir að leita til dómstóla sem munu leiða hið rétta fram.