Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabankanum flutti erindi nýlega um áhrif peningastefnu Seðlabankans á hrun bankakerfisins haustið 2008. Þó svo ég lýsi mig ekki sammála öllum hans ályktunum fannst mér frískandi að kynna mér efni fyrirlestrarins í samanburði við hálf- og vanþekkinguna sem einkennir umræðuna um orsakir hrunsins á vettvangi fjölmiðla- og stjórnmála. Ásgeir leggur áherslu á að það sem mestu hafi valdið um hvernig fór voru svokallaðir eftirspurnarskellir, ekki peningastefnan.
MeiraDV greindi frá því í dag að lán Samsonar hjá Arion-banka sem ítrekað var ranglega sagt vera vegna kaupa félagsins á Landsbankanum 2003 og fjármálaráðherra sagði vera „síðasta lánið undir sólinni sem ætti að afskrifa“ hefur verið gert upp í Arion-banka. Í greininni kemur fram að Landsbankinn og Arion hafi skipt á kröfum. Jafnframt kemur fram að allar líkur séu á því að lánið sem nú er í Landsbankanum verði greitt að fullu. Því má segja að „síðasta lánið undir sólinni“ sé úr sögunni. Fjármálaráðherra getur því sofið rólegur áhyggjulaus af afskriftum af þessu láni.
Allt efni á vefnum www.btb.is er unnið af Björgólfi Thor Björgólfssyni eða fyrir hann. Hann ber ábyrgð á efni vefjarins og er jafnframt handhafi höfundarréttar.