Björgólfur Thor Björgólfsson
Einkavæðing bankanna
Umsókn til Fjármálaeftirlits

Umsókn til Fjármálaeftirlits

12.nóvember 2002 sendi Samson umsókn til Fjármálaeftirlitsins og leitaðist eftir samþykki þess fyrir því að félagið eignaðist virkan eignarhlut,  45,8%, í Landsbankanum. Það samþykki var eitt skilyrða einkavæðingarnefndar. Fram kom að félagið var stofnað 4. September 2002. Stofnhlutafé var 1.500.000. krónur. Björgólfur Thor Björgólfsson var eigandi 50% hlutar, Björgólfur Guðmundsson 33% og Magnús Þorsteinsson 17%. Stjórn félagsins var heimilt að auka hlutaféð um allt að 10 milljarða króna. Eiginfjárframlag Samson í kaupunum á Landsbankanum var sagt verða um 30% og greitt í reiðufé. Fyrir lá staðfesting frá Merrill Lynch bankanum að kaupendur hefðu fjárhæðina til reiðu. Samið hafði verið við Dawney, breskt fjármálafyrirtæki, um aðstoð við fjármögnun á allt að 70% kaupverðsins.  Eiginfjárframlag eigenda Samson yrði 32 milljónir bandaríkjadala og lánsfjármagn 64 milljónir dala. Það yrði tryggt með handveði í safni hlutabréfa Í Pharmaco og Landsbankanum að markaðsverði um 96 milljónir dala. Handveð á móti lánum væri þannig 150%. Það hlutfall væri talið vel viðunandi. Fram kom að eignarhlutur þremenninganna í Pharmaco hf. væri að markaðsvirði 15,4 milljarðar króna. Í umsókninni til fjármálaeftirlitsins gerðu þremenningarnir ennfremur ítarlega grein fyrir öllu eignarhaldi og stjórnarsetu í öðrum fyrirtækjum. Þá sendu þeir einnig svör við spurningum FME þann 9. desember.

Tengd skjöl



RSS fréttastraumur

Allt efni á vefnum www.btb.is er unnið af Björgólfi Thor Björgólfssyni eða fyrir hann. Hann ber ábyrgð á efni vefjarins og er jafnframt handhafi höfundarréttar.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica