Bandaríska lyfjafyrirtækið Watson hefur gengið frá samningum um kaup á
Actavis. Kaupverðið er samtals 4,25 milljarðar evra, eða um 700 milljarðar króna. Lang stærsti hluti þeirrar upphæðar rennur til lánardrottna Actavis og minna. Þar er Deutsche Bank stærstur en Landsbankinn, Straumur og Glitnir áttu einnig verulegra hagsmuna að gæta. Þessir samningar eru öllum aðilum hagstæðir. Í samningunum felst að fjárfestingarfélag mitt Novator mun eignast hlut í sameinuðu félagi Watson og Actavis. Stærð þess hlutar ræðst af afkomu Actavis. Eftir kaupin verður sameinað fyrirtæki þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims með öflugar starfsstöðvar og hæft starfsfólk. Hér er tilkynning sem birt var í Kauphöllinni í New York vegna þessara viðskipta.
Vegna frétta um að Deutsche Bank hafi fengið heimild frá samkeppnisyfirvöldum ESB til yfirtöku á Actavis er rétt að ítreka að bankinn er ekki hluthafi í Actavis. Heimildin er formsatriði vegna ákvæða í samningum um fjárhagslega endurskipulagningu Actavis en efnisatriði þess samnings eru ekki opinber. Það sem upplýst hefur verið og liggur fyrir er að ég er stærsti hluthafinn í félaginu og sit í stjórn þess.
Meira
Dr. Claudio Albrecht, nýráðinn forstjóir Actavis, segir í athyglisverðu viðtali við Morgunblaðið í morgun að hann vilji halda í framsækinn hugsunarhátt íslenskra starfsmanna fyrirtækisins. Ég hef í þau tíu ár sem ég hef verið stjórnarformaður félagsins verið þeirrar skoðunar að starfsfólk fyrirtækisins á Íslandi væri félaginu gífurlegur styrkur og það gleður mig að sjá að nýr erlendur forstjóri sjái þetta sömu augum og að ég hafi ekki verið sleginn einhverri þjóðernisblindu. Viðtalið við Dr. Albrecht er annars gott og kemur fram í því skýr og afdráttarlaus sýn og afstaða forstjórans nýja til málefna félagsins.
Allt efni á vefnum www.btb.is er unnið af Björgólfi Thor Björgólfssyni eða fyrir hann. Hann ber ábyrgð á efni vefjarins og er jafnframt handhafi höfundarréttar.